Það er ekki að ósekju að grasalæknar leita á náðir ýmissa krydda til að bæta heilsu og kæta geð. Við heimsækjum grasagarð Lyfjafræðifélags Íslands með Ásdísi Einarsdóttur (.(JavaScript must be enabled to view this email address)) grasalækni og hún segir okkur aðeins um lækningamátt krydda og jurta. Hinn tælenski Matwa hjá Kókos og karrí leiðir okkur í allan sannleika um tælenskar fiskkökur og Svenni daðrar við blálöngur og steinbíta með masala, engifer og eldaldini. Sveinn og Ásdís bregða sér í fótabað á Seltjarnarnesi á meðan að þau snæða dásamlega einfaldan málsverð úr handraða kokksins.