Af hveru á ég að borða fisk?

  • Af því hann er svo góður á bragðið!
  • Heilsufarslegur ávinningur er af því að borða fisk a.m.k. einu sinni til tvisvar í viku. 
  • Fiskur er góð uppspretta hágæðapróteina þar sem fiskprótein innihalda fjölmargar lífsnauðsynlegar amínósýrur sem eru í hagstæðum hlutföllum hvað varðar þarfir mannslíkamans. 
  • Í fiskfitu er að finna langar ómettaðar fitusýrur (omega-3) sem ekki er að finna í jurtaolíum.
  • Fisk- og lýsisneysla getur minnkað líkur á ýmsum sjúkdómum, svo sem hjarta- og æðasjúkdómum. 
  • Fiskur er næringarrík fæða sem er t.d. auðugur af snefilefnunum selen og joði, en joð er m.a. mikilvægt fyrir starfsemi skjaldkirtils. 
  • Í feitum fiski er einnig að finna töluvert af D- vítamíni sem gegnir mörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum í sambandi við nýtingu á kalki.