Þarf að frysta hráan fisk sem notaður er í sushi?

Mælt er með því að þeir sem búa til sitt eigið sushi í heimahúsum frysti fiskinn áður en hans er neytt. Með frystingunni er verið að tryggja það að öll sníkjudýr drepist. Frystingin á ekki að breyta bragði fisksins.

Samkvæmt íslenskri matvælalöggjöf ber matvælafyrirtækjum og þeim sem selja ferskar/hráar sjávarafurðir beint til neytenda skylda til að frysta þær þannig að kjarninn ná -20°C í a.m.k. 24 klukkustundir. Dæmi um vörur eru hrár fiskur í sushi, síld, kaldreyking og grafning á fiski.