Hvað er lýsi?

Lýsi er olía unnin úr fljótandi fitu fisks og sjávarspendýra. Lýsi er einkum búið til úr lifur fisktegunda eins og þorsks, ufsa og hákarls. Lýsi er auðugt af A, D og E  vítamínum. D vítamín gegnir mikilvægu hlutverki við verndun beina. Lýsi inniheldur fremur lítið af mettuðum fitusýrum en mikið af fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum, EPA og DHA, sem eru manninum lífsnauðsynlegar.

Á heimasíðu lýsi er hægt að lesa sig meira til.