Við Elliðavatn býr hún Matta sem safnar/selur skótau og ræktar býflugur. Farið er út á bát til að ná í gómsætan silung í vatnið og boðið til garðveislu. Í eldhúsinu hans Svenna fær bleiki frændi hans, laxinn nokkur athyglisverð „meikóver“, meðal annars með wasabi-hnetum, soba núðlum og í plómu salati. Góðir gestir koma í heimsókn til Möttu og gæða sér á gjöfum náttúrunnar í ævintýraheiminum upp við Elliðavatn.