Sveinn fer á Fiskmarkað Íslands í Reykjavík og leitar að fallegasta karfanum til þess að grilla á ströndinni í Nauthólsvíkinni og býður góðum félögum að upplifa einstaka chili vímu. Þátturinn er eldheitur þar sem að chili/eldaldin leikur aðalhlutverkið ásamt karfa, smokkfisk og rækjum. Einnig fá áhorfendur að læra að útbúa sérstakan chili sleikjó til þess að fullkomna chili máltíðina.