Sveinn og Áslaug heimsækja Tækniskólann og ræða um skyndibita við nemendur og fá einn nemandann til þess að aðstoð sig við að logsjóða lúðu. Sveinn stúderar majónes og býr til fimm mismunandi tegundir. Austurlanda Hraðlestin er heimsótt og þar fá áhorfendur að sjá hvernig indverskt tuskubrauð er búið til. Sveinn og Áslaug rölta með tuskubrauðin til nemenda í listdansi við Listaháskóla Íslands og elda tandoori steinbít sem að nemendurnir vefja inn í tuskubrauðin ásamt grænmeti og góðri sósu.