Lúrur og grallarar eru önnur orð yfir flatfiska, til dæmis lúðu og sandkola en það er rauðsprettan sem er í aðalhlutverki í þessum þætti. Farið verður í berja- og sveppamó í Heiðmörk og Ása Ásgrímsdóttir fræðir okkur um hvernig á að bera sig að við tínslu sveppa. Að lokum er slegið upp veislu með litlum gröllurum í túnfætinum á Lynghóli.