Sá Guli

Sá Guli fjallar um þorskinn, fiskinn sem hefur leikið stórt hlutverk í Íslandssögunni. Sveinn fer út á sjó með Arnari gítarleikara í hljómsveitinni Mammút og fyrrum norðurlandameistara í flokki unglinga í sjóstangveiði. Þeir tveir veiða nokkra væna þorska sem Sveinn fer með í eldhúsið og sýnir hvernig hægt er að nýta allan fiskinn allt frá roðinu, hnakkanum, hrognum og hausnum í girnilegar máltíðir. Áslaug og Sveinn slá svo upp mikilli þorskveislu í æfingarhúsnæði Mammúts þar sem bakaðir þorskhausar og stökkt þorskroð er á boðstólnum.


Uppskriftir

FRÆÐSLUMOLINN

Hvað er lýsi?

Skoða þættina:

24.07.11
31.07.11
28.08.11
25.09.11