Fagur fiskur eru sjónvarpsþættir, sýndir á RÚV á sunnudagskvöldum kl. 19:35, sem hafa það að markmiði að kynna fyrir áhorfendum alla þá ótrúlegu möguleika í því frábæra hráefni sem finnst í hafinu í kringum landið. Hugmyndin af þáttunum kviknaði hjá Gunnþórunni Einarsdóttur matvælafræðingi hjá Matís og Brynhildi Pálsdóttur vöruhönnuði. Mastersverkefni Gunnþórunnar í matvælafræði við Háskóla Íslands fjallaði um stöðu fiskneyslu hjá ungu fólki á Íslandi. Niðurstöður verkefnisins sýndu að mikil þörf væri fyrir að efla bæði þekkingu fólks og neyslu þess á sjávarfangi. Út frá þessu verkefni kviknaði sú hugmynd að gera sjónvarpsþætti þar sem sjávarfang landsins væri í aðalhlutverki. Þær Gunnþórunn og Brynhildur fengu Svein Kjartansson matreiðslumann, Áslaugu Snorradóttur ljósmyndara og Sagafilm í lið með sér til þess að láta hugmyndina verða að veruleika. Hugmyndin var þróuð áfram og útfærð af Áslaugu, Sveini og Hrafnhildi Gunnarsdóttur leikstjóra hjá Sagafilm.
Gerð þáttana var styrkt af AVS rannsóknarsjóði í sjávarútvegi.
Sveinn Kjartansson matreiðslumaður og einn eiganda Fylgifiska hefur komið víða við á starfsferli sínum. Hann útskrifaðist sem matreiðslumaður frá Hótel og Veitingaskóla Íslands árið 1985 og hélt fljótlega utan til Osló þar sem hann vann sem matreiðslumaður. Fljótlega lá leiðin til Amsterdam þar sem Sveinn starfaði um áraraðir. Hann vann á ýmsum veitingastöðum á ferðalögum sínum um heiminn og hefur starfað á erlendri grundu lungað úr starfsferlinum. Við og við kom hann heim og setti m.a. upp veitingastofuna á Listasafni Íslands, þegar það flutti í núverandi húsnæði. Einnig starfaði hann við veitingahúsið Við tjörnina.
Árið 2002 opnaði Sveinn Fylgifiska, sérverslun með sjávarfang ásamt Guðbjörgu Glóð Logadóttur sem hann rekur nú ásamt henni og Gunnari Logasyni.
Sveinn er höfundur af 60 uppskriftum í Fiskbók Hagkaupa sem kom út árið 2004
Áslaug Snorradóttir er ljósmyndari og hefur sérhæft sig í matartengdri ljósmyndun. Hún hefur meðal annars haft umsjón með ljósmyndum og kynningarefnum fyrir helstu veitingastaði landsins. Áslaug hefur einnig skrifað greinar og tekið ljósmyndir um íslenska og erlenda matarmenningu fyrir tímarit s.s Iceland Review, Atlantica, W magazine ofl. Áslaug hefur mikla reynslu af útgáfu matreiðslubóka, hún hefur unnið að fjölmörgum þar á meðal ”About Fish“ 2002, bók sem varpaði ljósi á hönnun, matargerð og lífstíl tengdum íslenskum sjávarfangi. Einnig ritstýrði hún og tók allar ljósmyndir í bókinni „Náttúran sér um sína“ matreiðslu og stemmningabók um Rúnar Marvinson. Á árunum 1991 til 2004 sá Áslaug um ýmsa matartengda þætti í Morgunblaðinu, ritstýrði og tók allar myndir fyrir sértímaritið M sem fjallaði um mat og vín.
Frá árinu 2007 hefur Áslaug rekið fyrirtækið Pikknikk sem sérhæfir sig í að halda einstakar veislur fyrir ýmis tækifæri, þar sér Áslaug um alla umgjörð og skipulagningu.