1 kg blálanga
MASALA
10 stk kardimommur
12 stk kóríanderfræ
8 stk fennelfræ
10 stk grænt chili
3 stk hvítlauksrif
30 gr engifer
40 gr kóríander
20 gr mynta
2 tsk sambal
2 msk kókosmassi (má líka not þykka partinn úr kókosmjólkinni)
Svartur pipar
Takið kardimommufræin úr hýðinu, setjið í mortél ásamt kóríander- og fennelfræjum og maukið. Skerið chili í litla bita og bætið því í saman við fræin og merjið vel ásamt hvítlauk og engifer (gott að sneiða það fyrst í litla bita). Bætið kóríander og myntu saman við og maukið vel saman. Setjið nú maukið allt í stærri skál, bætið sambal saman við ásamt kókosmassanum og piprið.
Skerið blálönguna í bita. Setjið í eldfastmót, saltið og hellið masala maukinu yfir svo blandist vel saman við fiskinn. Bakið í ofni við 200 °C í um 15 mínútur.