Blálanga með tómatkryddmauki

2 msk salthnetur
1 kg  blálanga
4 msk mauk af sólþurrkuðum tómötum
1 búnt basilíka
3 msk hvítvín
Olía og smjör til steikingar

 

Forhitið ofn í 200°C. Ristið salthnetur á heitri pönnu og geymið. Skerið blálöngu í bita og steikið á heitri pönnunni í um 2 mínútur. Snúið þá fisknum við og smyrjið tómatmaukinu á og steikið á þeirri hlið í 2 mínútur til viðbótar. Takið þá fiskinn af pönnunni. Setjið hann í eldfast mót og bakið í 5 mínútur við 200°C. Á meðan fiskurinn bakast hellið þá hvítvíni á pönnuna og látið það sjóða upp. Hellið því svo yfir fiskinn þegar hann er tilbúinn ásamt saxaðri basilíku og ristuðum salthnetum.



Bookmark and Share