Uppskrift fyrir um 30 stk af vorrúllum
500 gr lúða
½ bolli hveiti
120 gr olía
50 gr hvítlaukur, saxaður
20 gr kóríander
150 gr gulrætur, saxaðar
200gr kál, saxað
100 gr sveppir, skornir
50 gr blaðlaukur, saxaður
30 gr sykur
½ tsk hvítur pipar, duft
50 gr soja sósa
½ tsk salt
300 gr gler núðlur
Vorrúllupappír
Skerið lúðuna í bita og veltið upp úr hveitinu. Djúpsteikið fiskinn þar til hann verður gulbrúnn. Látið kólna. Setjið 120 gr af olíu á pönnu, ristið hvítlauk og kóríander þar til þau taka smá lit. Setjið restina af grænmetinu á pönnuna og ristið í 2 til 3 mínútur. Setjið núðlurnar í sigti í sjóðandi vatn í ca 30 sec, takið upp úr og látið leka vel af þeim. Setjið sykur, pipar, soja sósu og salt á grænmetið og ristið í 2 til 3 mínútur. Setjið fiskinn og gler núðlurnar saman við og blandið vel saman. Látið kólna. Brjótið saman inn í vorrúllupappír. Djúpsteikið vorrúllurnar í 6 til 7 mínútur þar til þær verða ljósbrúnar. Berið fram með plómu- eða chili sósu.