800 gr þorskhnakkar
4 msk maldonsalt
1 bolli vatn
Skerið hnakkana í litla bita og setjið í skál og stráið saltinu yfir. Bætið vatninu í og geymið í kæli í um 4-6 klst.
KARTÖFLUSALAT
200 gr litlar nýjar kartöflur
100 gr skalottulaukur
200 gr grasker
200 gr kúrbítur
100 gr kirsuberjatómatar
Pipar
2 msk hvítlauksolía
½ búnt bergmynta (oregano)
Skerið kartöflurnar í fernt, flysjið laukinn og graskerið. Skerið graskerið og kúrbítinn í álíka stóra bita og laukurinn og tómatarnir eru.
Setjið kartöflurnar í stórt eldafast mót og piprið. Hellið hvítlauksolíunni yfir og bakið í um 25 mínútur við 180°C.
Þegar kartöflurnar hafa verið í ofninum í 5 mínútur bætið þá skalottulaukunum í mótið, 5 mínútum seinna bætið graskerinu saman við. Eftir aðrar 5 mínútur bætið kúrbítnum og tómötunum einnig út í. Fiskurinn fer síðastur í mótið 5 mínútum seinna og allt bakað í 5 mínútur til viðbótar.
Steikið bergmyntustönglanna á pönnu í olíu í um 1 mínútu á hvorri hlið og kælið aðeins, setjið þá svo yfir salatið á eftir olíusósunni.
OLÍUSÓSA
4 msk rifinn parmesan
2 msk eplaedik
2 dl ólífuolía
Pipar
Blandið öllu saman og hellið yfir kartöflusalatið