100 gr smjör
2 bollar brauðraspur
½ búnt basilíka
¼ búnt bergmynta (oregano)
¼ búnt steinselja
Salt og pipar
4 stk. þorskhausar
4 msk hvítlauksolía
Smjör
Sítróna
Bræðið smjörið, takið af hitanum og blandið brauðraspi saman við. Saxið kryddjurtirnar og bætið út í. Saltið og piprið.
Nuddið þorskhausunum upp úr raspblöndunni og hellið hvítlauksolíu yfir. Setja hausanna inn í 180°C heitan ofn og bakið í 20 - 25 mínútur.
Setjið hausanna á disk og kreistið sítrónu yfir.
Einnig er gott að saxa smá aukalega af kryddjurtunum og bæta út í brætt smjör með kreistu af sítrónu og hella heitu yfir þorskhausana rétt áður en þeir eru bornir fram.