Steikt þorskhrogn

BRAUÐRASPUR
300 gr brauðraspur
150 gr  japanskur brauðraspur (Panko)
3 stönglar sólselja (dill)
2 stönglar garðablóðberg (timjan)
Salt og pipar

Bætið Panko raspinum saman við brauðraspinn. Saxið sólseljuna og garðablóðbergið og bætið út í. Saltið og piprið

HROGN
800 gr þorskhrogn
4 msk hvítlauksolía
Brauðraspur
2 stk rauðlaukar
12 stk sveppir, skornir niður
4 msk piparrót, rifinn
4  msk kapers
1½ dl rjómi
Olía og smjör til steikingar

Setjið vatn til suðu og sjóðið hrognin í tæpar 5 mínútur. Gott ráð er að pakka hrognunum í plastfilmu og sjóða í henni. Kælið vel.
Skerið buxurnar í tvennt svo skálmarnar sé lausar hvor frá annarri. Skerið þær næst þvert í sneiðar og setjið í djúpan disk. Hellið hvítlauksolíunni yfir og svo raspinum. Veltið hrognunum upp úr og steikið í stutta stund á heitri pönnu í olíu og smjöri.
Saxið rauðlaukinn og bætið á pönnuna þegar búið er að snúa hrognunum við. Sneiðið sveppina í fernt og bætið á pönnuna. Rífið piparrótina og bætið út í ásamt kapers.
Færið hrognin yfir á disk, setjið svo pönnuna aftur á eldavélina. Hellið rjómanum á pönnuna og látið suðuna koma upp. Saltið og piprið eftir smekk. Setið hrognin yfir rjómann frekar en öfugt svo þau haldist stökk.



Bookmark and Share