500 gr gulrótarsalat (sjá uppskrift að neðan)
800 gr steinbítur
400 gr spergilkál
Grænmetiskraftur
Pipar og salt
Blóm af kóríander og dillplöntu (má nota kryddjurtina).
GULRÓTARSALAT
500 gr gulrætur
1 msk engifer
1 msk hunang
1 dós grískt jógúrt
Skrælið gulrætur og rífið fínt. Bætið fínt söxuðu engifer, hunangi og grísku jógúrti saman við og hrærið vel.
STEINBÍTUR
Setjið vatn til suðu bætið grænmetiskrafti út í og skerið steinbít og spergilkál í bita. Setjið þau út í pottinn og sjóðið í um tvær mínútur. Setjið í þrjár skálar, fiskinn í eina, spergilkál í aðra og gulrótarsalatið í þá þriðju. Saltið og piprið. Setjið kryddurtablómin yfir steinbítinn.