1 stk granatepli
400 gr spínat
4 msk grískt jógúrt
½ appelsína (safinn)
4 stk pappadums
800 gr silungur roðlaus og beinlaus
Pipar og salt
2 msk hvítlauksolía
3 msk tikka masala mauk
3 stk vorlaukur
Byrjið á að taka innan úr granateplinu með t.d. gafli og setja í sigti þannig að safinn sigtist frá fræjunum (geymið safann). Setjið spínatið á fat og stráið granatfræjunum yfir. Hrærið jógúrti saman við safann af granateplinu og appelsínusafa. Steikið pappadumið samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Takið silunginn og skerið í bita, saltið og piprið og steikið í um 1½ mínútu á hvorri hlið. Bætið tikka maukinu út á pönnuna þegar silunginum er snúið við og látið maukið leysast upp þegar silungurinn er að steikjast á seinni hliðinni.
Þegar silungurinn er steiktur er gott að grófskera vorlauk og strá honum yfir.